Traust bókhaldsþjónusta sem sparar þér tíma og peninga
Bókhald þarf að vera rétt unnið – í hvert skipti. Við veitum faglega bókhaldsþjónustu fyrir fyrirtæki og einstaklinga sem vilja nákvæmni, skýra yfirsýn og áreiðanleg skil.
Minni áhætta. Betri yfirsýn. Meiri hagkvæmni.
Skref 1
Kynnumst þér
Kynnum okkur reksturinn og í sameiningu finnum þjónustuleið sem hentar þér.
Skref 2
Einfalt fyrirkomulag
Við setjum upp áætlun fyrir þjónustuna sem veitir fyrirsjáanleika í kostnaði.
SKREF 3
Einfaldara líf
Við gerum okkar og þú gerir þitt. Við sjáum um bókhaldið og öll skil á réttum tíma.
Þú sparar tíma og peninga
Af hverju að taka áhættu með skattframtalið?
Eitt rangt skráð atriði getur kostað þig tugi eða hundruð þúsunda. Á sama tíma missa margir af frádráttum og réttindum einfaldlega vegna óvissu eða tímaskorts.
Með faglegri aðstoð tryggir þú að framtalið sé rétt, hámarkar endurgreiðslu þar sem við á og sparar þér klukkutíma af yfirferð, leit og áhyggjum.
Láttu sérfræðing sjá um skattframtalið svo þú getir einbeitt þér að því sem skiptir máli.
BT Bókhald
Afhverju að velja okkur?
✔️ Fagleg þekking í hagfræði og fjármálum
✔️ Nákvæm vinnubrögð og áreiðanleg skil
✔️ Skýr samskipti og gott aðgengi
✔️ Þjónusta sniðin að þínum rekstri
Við vinnum ekki bara bókhald – við hjálpum þér að hafa stjórn á tölunum.
Þjónustan
Við bjóðum upp á heildstæða bókhaldsþjónustu fyrir lítil og meðalstór fyrirtæki.
Uppgjör
Regluleg uppgjör sem veita skýra mynd af stöðu rekstrarins. Við tryggjum að tölurnar séu réttar og að þú hafir yfirsýn.
Bókun reikninga
Nákvæm og skipulögð bókun inn- og útreikninga með skýru utanumhaldi.
Ársreikningagerð
Gerð ársreiknings í samræmi við lög og reglur, með faglegri framsetningu og skýringum þar sem við á.
Skattframtal
Framsetning og skil skattframtals, ásamt leiðsögn varðandi skattaleg atriði.
Senda reikninga
Við sjáum um útgáfu reikninga og eftirfylgni ef óskað er.
Afstemmingar
Reglulegar afstemmingar banka, virðisaukaskatts og annarra lykilreikninga til að tryggja nákvæmni.
Launavinnsla
Launaútreikningar, skilagreinar og samskipti við viðeigandi aðila.
Verðskrá
Gagnsæ og skýr verðstefna
Verð fer eftir umfangi og eðli rekstrar. Við gerum skýrt verðtilboð áður en samstarf hefst – engar óvæntar uppákomur.
Algeng uppsetning:
- Mánaðargjald fyrir reglulega þjónustu
- Fast verð fyrir einstök verkefni (t.d. skattframtal eða ársreikning)
Hafðu samband og fáðu tilboð sem hentar þínum rekstri.
Hafðu samband
Bókaðu símtal
Sendu okkur línu og við höfum samband sem allra fyrst.
Gott bókhald er grunnur að heilbrigðum rekstri
Hafðu samband og við förum yfir hvernig við getum einfaldað bókhaldið og styrkt reksturinn þinn.
